Elísabet Thoroddsen
Lesbíur óskast
Lesbíur óskast
Þegar Hlín vaknar skelþunn á miðjum laugardegi rifjast upp fyrir henni að hún á von á fimm bláókunnugum lesbíum í mat um kvöldið. Hlín er að skilja við eiginmann sinn og nýflutt í litla kjallaraholu sem er í rúst. Hún kann ekki að elda, hefur ekki efni á víni með matnum og efast um allar ákvarðanir sem hún hefur tekið í lífinu. Svo kann hún ekkert að tala við lesbíur.
Í bókinni fylgjum við Hlín í gegnum skrautlegt matarboð þar sem hún mátar sig við lesbíuheiminn og horfist í augu við eigin fordóma. Í framhaldinu reynir hún að koma lífi sínu á réttan kjöl og skoðar fortíð sína út frá nýju sjónarhorni. Samhliða því sem Hlín skoðar fortíð sína og fyrri sambönd sekkur hún dýpra og dýpra, heimsmynd hennar hrynur, kvíðinn tekur yfir og skömmin flýtur upp á yfirborðið.
Umbrot og kápuhönnun: Greta Þorkelsdóttir
Bókabeitan ehf., Reykjavík 2026
www.bokabeitan.is
ISBN 978-9935-579-69-0
Couldn't load pickup availability
