Forsalan er hafin!

Lesbíur óskast

Þú getur tryggt þér eintak núna og sótt eða fengið sent um leið og bókin kemur til landsins (áætluð lending er um miðjan nóvember).

Þegar Hlín vaknar skelþunn á miðjum laugardegi rifjast upp fyrir henni að hún á von á fimm bláókunnugum lesbíum í mat um kvöldið. Hlín er að skilja við eiginmann sinn og nýflutt í litla kjallaraholu sem er í rúst. Hún kann ekki að elda, hefur ekki efni á víni með matnum og efast um allar ákvarðanir sem hún hefur tekið í lífinu. Svo kann hún ekkert að tala við lesbíur.

Í bókinni fylgjum við Hlín í gegnum skrautlegt matarboð þar sem hún mátar sig við lesbíuheiminn og horfist í augu við eigin fordóma. Í framhaldinu reynir hún að koma lífi sínu á réttan kjöl og skoðar fortíð sína út frá nýju sjónarhorni. Samhliða því sem Hlín skoðar fortíð og fyrri sambönd sekkur hún dýpra og dýpra, heimsmynd hennar hrynur, kvíðinn tekur yfir og skömmin flýtur upp á yfirborðið.

Kaupa bók

Allar vörur

  • Elísabet Thoroddsen

    elisabet.thoroddsen@gmail.com

    S: +354 822 3691