{"title":"Books about Tinna","description":"","products":[{"product_id":"allt-er-svart-i-myrkrinu","title":"Allt er svart í myrkrinu","description":"\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\u003cspan\u003eTinna er á leiðinni í vetrarfrí með foreldrum sínum þegar þau lenda í bílslysi á dimmum sveitavegi. Í kjölfarið er Tinna veðurteppt á sjúkrahúsinu í litlum bæ þar sem hún kynnist Dóru, dóttur yfirlæknisins. Dóra þekkir hvern krók og kima hússins og finnur upp á ýmsu skemmtilegu á meðan þær bíða eftir að óveðrið gangi yfir. Fúllyndur hjúkrunarfræðingur virðist alltaf vera á hælunum á þeim og drungalegir atburðir fara að gerast þegar þær hætta sér inn á deild spítalans sem er lokuð. Áður en þær vita af þurfa þær að berjast fyrir lífi sínu í dimmri vetrarnóttinni.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Elísabet Thoroddsen","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44444566585483,"sku":null,"price":4000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0710\/8552\/3083\/files\/DD3A93C4-6530-4400-A47C-AC2281A247F6-12_83d52044-57df-4992-8d1b-b91e9dcd714e.png?v=1762110618"},{"product_id":"a-eftir-dimmum-skyjum","title":"Á eftir dimmum skýjum","description":"\u003carticle id=\"book_description\"\u003eTinna er flutt og þarf að fóta sig í nýjum skóla. Bekkurinn hennar er frekar glataður en sem betur fer kynnist hún Karítas og síðan Sól, svo lífið gæti verið verra.\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eÞegar salerni í unglingadeildinni er sprengt í loft upp fer skólastarfið í uppnám. Tinnu grunar að árásin beinist gegn hinsegin nemendum en yfirvöld skólans eru treg að viðurkenna það. Tinna og vinir hennar taka því málin í sínar hendur. Þau vilja vita hver bera ábyrgð og ekki síður ástæðuna fyrir verknaðinum. \u003c\/span\u003e\u003cspan\u003eFyrr en varir eru þau á flótta undan sprengjuvörgunum og flækt í atburðarás sem leiðir þau í lífsháska í næturfrosti og myrkri við gömlu höfnina.\u003c\/span\u003e\u003c\/article\u003e\n\u003carticle\u003e\u003c\/article\u003e\n\u003carticle\u003e\u003c\/article\u003e\n\u003carticle\u003e\u003c\/article\u003e","brand":"Elísabet Thoroddsen","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44444572057739,"sku":null,"price":4000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0710\/8552\/3083\/files\/DD3A93C4-6530-4400-A47C-AC2281A247F6-1.png?v=1762110465"},{"product_id":"undir-sjounda-thili","title":"Undir sjöunda þili","description":"\u003carticle id=\"book_description\"\u003eTinna er í sínu fyrsta ferðalagi með skátunum þegar óveður og óvæntir atburðir breyta ævintýrinu í martröð. Hóparnir eru sendir út um miðja nótt að leysa þrautir en Tinnu hættir að lítast á blikuna þegar vísbendingarnar verða sífellt skrítnari og óhugnalegri. Skyndilega skellur á blindbylur og Tinna verður viðskila við hópinn …\u003c\/article\u003e\n\u003carticle id=\"book_long_description\"\u003eAlein í ískaldri og hrjóstrugri náttúrunni áttar hún sig á að hún ratar ekki aftur í skálann. Þar að auki verður tilfinningin um að eitthvað, eða einhver, fylgist með henni úr fjarlægð stöðugt sterkari. Hvar eru allir hinir og hvernig á hún að komast til baka þegar hún veit ekki einu sinni hvar hún er? Getur veirð að draugasagan sem Bjarni skátaforingi sagði þeim fyrsta kvöldið sé sönn? Að einhvers staðar, þarna í myrkrinu leynist rjúpnaskyttan hræðilega?\u003c\/article\u003e","brand":"Elísabet Thoroddsen","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44444583690379,"sku":null,"price":4000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0710\/8552\/3083\/files\/DD3A93C4-6530-4400-A47C-AC2281A247F6-12.png?v=1762108142"}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0710\/8552\/3083\/collections\/IMG_4940.png?v=1762086073","url":"https:\/\/elisabetthoroddsen.is\/collections\/baekurnar-um-tinnu.oembed","provider":"Elísabet Thoroddsen","version":"1.0","type":"link"}